Journal
Return to the homepage

There are 10 Journal Items in 2 pages and your are on page number 1

Hjálparbeiðni frá Palestínu

Palestínumenn og Ísraelar þurfa átakanlega á hjálp ykkar að halda

segir George Rishmawi hjá Holy Land Trust í Betlehem í opnu bréfi til Ástþórs Magnússonar.  Í langan tíma hafa þjáningar okkar undir hernámi Ísraela verið hundsaðar af alþjóðasamfélaginu.  Nú finnum við sterka rödd sem mun standa upp í baráttunni fyrir réttlæti og varanlegum frið verðir þú kjörinn forseti.

Langt starf þitt fyrir friði og gegn ofbeldi, og barátta þín fyrir betri framtíð mankyns, ætti að gera þjóð þína stolta af þér.  Frá Palestínu, Ástþór Magnússon, erum við stolt af þér, stolt af samstarfi okkar og stolt af mannúð þinni sem við söknum hjá leiðtogum heims.

Við munum öll eftir því þegar forsetar bandaríkjanna og sovétríkjanna mættust á Íslandi á dögum kalda stríðsins.  Frá þeim tíma hefur fólk um allan heim litið til Íslands í von um aukin framlög til heimsfriðar.

Lesið allt bréfið hér

 

Posted by Ritstjóri on Thursday, June 24, 2004 at 01:46 Comments (11865)

Er forsetinn að lítisvirða þjóðina?
Er forsetinn að lítisvirða þjóðina?
Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson hefur að engu áskoranir um að ræða við aðra forsetaframbjóðendur og blaðamenn um þá ákvörðun sína að skrifa ekki undir svokölluð 'fjölmiðlalög'.  Forsetinn talaði um fjölmiðla sem 'fjórða valdið' í ávarpi sínu á Bessastöðum en hleypur síðan í felur þegar Ástþór Magnússon reynir að ná tali af honum í augnarblik til að fá Já eða Nei svar við áskorun um eðlilegar og lýðræðislegar kappræður í fjórða valdinu.  Ástþóri finnst forsetinn lítisvirða lýðræðið og þjóðina með þessari framkomu og tekur sér orð Steingríms J. Sigfússonar í munn og spyr: Ertu sú 'gunga og drusla' að þora ekki að mæta mér fyrir opnum tjöldum? Hver er þín skoðun á framkomu forsetans og áskorun Ástþórs Magnússonar á Ólaf Ragnar Grímsson?
Posted by Ritstjóri on Monday, June 14, 2004 at 20:41

Friður2000 vill yfirtaka Norðurljós

Friður2000 vilja yfirtaka fjölmiðla Norðurljósa

Friður 2000 vill yfirtaka fjölmiðla Norðurljósa til að tryggja áframhaldandi rekstur þeirra.  Þarna gæti einnig skapast kjörið tækifæri fyrir samtökin að samnýta tækjabúnað fyrir www.peacetv.net

 

Það er von Friðar 2000 að með yfirtöku á fjölmiðlum Norðurljósa myndu samtökin geta lagt almennar grundvallarlínur að opnara, fjölbreyttara og lýðræðislegra fjölmiðlaumhverfi á Íslandi og fjölmiðlar Norðurljósa myndu í framtíðinni hafa það að leiðarljósi að veita öllum jafnan aðgang.

 

Þannig ætti að vera hægt að koma í veg fyrir að sú mismunun sem átti sér stað við forsetakosningar árið 1996 á Stöð2 endurtaki sig nú.  En þá dró sjónvarpsstöðin taum eins frambjóðanda fram yfir aðra.  Jón Ólafsson fyrri eigandi  Stöðvar2 var yfirlýstur stuðningsmaður Ólafs Ragnars Grímssonar og kom þetta fram með ýmsum hætti í umfjöllun fjölmiðilsins.  Sagan virðist að endurtaka sig nú, en framganga einstakra fjölmiðla hefur verið með þeim hætti að undirritaður hefur leitað til OECD um að hingað til lands verði sendir alþjóðlegir eftirlitsmenn til að veita fjölmiðlum aðhald og ekki endurtaki sig á Íslandi ‘rússneskar kosningar’ vegna misnotkunar fjölmiðla eins og í Rússlandi fyrr á árinu.

Posted by ritstjorn on Saturday, May 01, 2004 at 14:07 Comments (307)

Gleðilega Páska

Páskadags áskorun á forseta Íslands Hr. Ólaf Ragnar Grímsson:

 

Gleðilega páska!  Á undanförnum árum hef ég ítrekað leitað til þín með beiðni um að embætti forseta Íslands beiti sér í friðarmálum.  Ég hef minnt á kosningaloforð frá 1996 og varað við að forsetinn sitji sem áhorfandi að ástandinu í Mið-Austurlöndum án þess að láta málin til sín taka.  Því miður hafa bænir mínar til forseta fallið í grýtta jörð og er skemmst að minnast páska fyrir tveimur árum þegar forseti lét þau orð falla við mig í heimreiðinni að Bessastöðum að enginn áhugi sé á að svara erindum Friðar 2000.  Ástandið í Mið-Austurlöndum versnar stöðugt og framtíðarspár mínar í því sambandi allar komið fram... Lesið allt bréfið hér

Posted by Ástþór Magnússon on Sunday, April 11, 2004 at 11:42

Viðvörun til flugfarþega

Hryðjuverkahætta gegn Íslenskum flugvélum

 

Þótt dregið hafi úr hættu á hryðjuverkum gegn Íslenskum flugvélum þökk sé öflugum mótmælum Ástþórs Magnússonar og Friðar 2000 sem urðu til að stöðva brjáluð áform Íslenskra stjórnvalda að senda vopn og hermenn í farþegaflugvélum Icelandair til Írak má ekki sofna á verðinum.  Nýafstaðin hryðjuverk á Spáni undirstrika að hryðjuverkahætta gegn Íslandi og þá sérstaklega Íslenskum flugvélum er enn fyrir hendi.

 

Friður 2000 telur að þjóðin eigi að krefja eftirfarandi svara frá flugfélögunum Icelandair og Atlanta:

 

1. Hafa flugfélögin sagt upp samningi við Utanríkisráðuneytið frá 20. nóvember 2002 sem kynntur var í fjölmiðlum 21 og 22 nóvember með eftirfarandi yfirlýsingu stjórnvalda: ‘Ísland hefur skuldbundið sig til að verja allt að 300 milljónum króna til þess að leigja flugvélar undir herflutninga’.  Friður 2000 ítrekar nauðsyn þess að þessum samningum verði sagt upp án tafar. 

 

2. Friði 2000 er kunnugt um að flugfélagið Atlanta tók þátt í herflutningum frá Bretlandi til Mið Austurlanda í tengslum við innrás Bandaríkjanna í Írak.  Þar sem flugvélar Atlanta eru skráðar hér á landi á Íslenska þjóðin kröfu á að fá upplýst umfang þessara flutninga, hverjir voru leigutakar vélanna, hvort flogið var í merktum vélum, og hvort slíkir flutningar eru enn í gangi.   Þá hefur það komið fram í nýlegum fréttum að Atlanta sé að flytja hergögn til Afghanistan á kostnað Íslenska ríkisins.  Sömu spurningar eiga við um þá flutninga.

 

Friður 2000 fordæmir starfshætti Héraðsdóms Reykjavíkur og Hæstaréttar Íslands í þessu máli, en báðir dómstólarnir komu í veg fyrir að Ástþór Magnússon gæti lagt fram skjalabúnka og kallað til vitni og þannig sýnt og sannað með ótvíræðum hætti að notkun borgarlegra farþegaflugvéla til herflutninga setur viðkomandi flugfélög, starfsfólk þeirra og farþega í stórkostlega lífshættu. 

 

Hinsvegar fagnar Friður 2000 því að mótmæli Ástþórs Magnússonar og nær tíu þúsund mótmælabréf erlendra friðarsinna, hafi átt verulegan þátt í að stöðva brjáluð áform Íslenskra stjórnvalda um að senda farþegaflugvélar þjóðarinnar í stríð gegn Írak.   Jafnframt er fordæmd aðför stjórnvalda að Ástþóri Magnússyni sem var ólöglega fangelsaður og sú aðför lögreglu að Friði 2000 að brjótast ólöglega inn í skrifstofur samtakanna í Reykjavík og taka þaðan tölvur sem nú fyrst hefur verið skilað nær tveimur árum síðar.  Þá var það ekki til fyrirmyndar hvernig ráðuneyti og flugmálayfirvöld lokuðu netþjónum sínum fyrir mótttökur á mótmælabréfum frá útlöndum og hvernig staðið var að því að loka algerlega á netsamband og heimasíðu Friðar 2000 í kjölfarið.

Posted by Ritstjóri on Monday, March 15, 2004 at 10:21 Comments (562)

Símahleranir

Fregnir hafa borist frá starfsmanni Landssíma Íslands að símar hjá Ástþóri Magnússyni og Friði 2000 hafi verið hleraðir.  Aðdragandi þessara símahlerana er ókunnur en undirrituðum er ekki kunnungt um neinn málarekstur opinberra aðila gegn honum eða félaginu Friður 2000 annað en umdeilt mál Ákæruvaldsins ákært þann 2. desember 2002 sem sýknudómur féll í þann 4 júlí 2003 í Héraðsdómi Reykjavíkur og þann 19 febrúar 2004 í Hæstarétti. 

 

Fregnir af símahlerunum koma þó ekkert sérstaklega á óvart þar sem framganga lögreglu í þessu máli var það sérstæð að athygli vakti víða um heim.  Enda minntu aðgerðir Ríkislögreglustjóra í þessu máli gegn undirrituðum og Friði 2000 frekar á starfshætti alræmdrar leyniþjónustu fyrrum Sovétríkjanna en það sem menn telja sig þekkja úr vestrænni menningu.  Að vísu eru til á þessu einstaka undantekningar eins og t.d. háttsemi öfgamannsins J.Edgar Hoover forstjóra FBI stofnunarinnar sem fór á svig við lög, reglur og almennt velsæmi í njósnaaðgerðum sínum gegn svokölluðum ‘kommúnistum’ í Bandaríkjunum.  

Nú veit undirritaður ekki hvort Ríkislögreglustjórinn eða aðrir opinberir aðilar hafi flokkað hann undir hættulegan kommúnista sem sækist í að ná kjöri í embætti Forseta Íslands og þessvegna sé ástæða til vegna yfirstandandi ógnunar við ‘öryggi ríkisins’ að fara að fordæmi Hoovers og hlera síma undirritaðs og samtakanna Friðar 2000.  En ljóst er að einhverjir opinberrir aðilar á Íslandi virðast komnir á svig við lögin um meðferð opinberra mála en þar segir svo . . .

Smelltu hér til að lesa allt bréfið

Posted by Ritstjóri on Thursday, March 11, 2004 at 12:15 Comments (3049)

Sýknaður í Hæstarétti

Ástþór Magnússon hefur verið sýknaður í Hæstarétti af kæru Ríkislögreglustjóra vegna viðvörunar Friðar 2000 gegn því að Íslenskar flugvélar flytji vopn og hermenn í ólögmætu stríði gegn Írak. 

Það sem upp úr stendur í þessu máli, er að Ástþór og Friður 2000 hafa unnið stórsigur með því að hafa stöðvað vægast sagt vafasamar tilætlanir ríkisstjórnarinnar um að blanda Íslensku farþegaflugi inn í vopnaflutninga.  Ef slíkt hefði gerst hefði slíkt getað leitt til þess að brennimerkja Íslenskar flugvélar í fjölda ára sem skotmark hryðjuverkahópa frá Mið-Austurlöndum.

Ástþór notaði viðurkennda tækni alþjóðlegra friðarsinna við mótmæli sín.  Ögrandi texti í skeyti og uppákomur í Héraðsdómi þar sem hann notaði m.a. tómatsósu sem blóðlíki til að mótmæla þeim pólitíska skrípaleik sem dómstóllinn var orðinn þátttakandi í á meðan sprengjuregn var að murka lífið úr þúsundum saklausra borgara í Írak með loftárásum sem Íslenska ríkisstjórnin studdi í undirlægjuhætti sínum við Bush stjórnina í Bandaríkjunum. 

Það er áhugavert að skoða yfirlýsingar forsætisráðherra frá hinum fræga NATO fundi og svo hvernig menn fóru að draga í land eftir að Ástþór mótmælti.  Á endanum voru yfirlýsingar forsætisráðherra og samningarnir sem Utanríkisráðuneytið gerði við flugfélögin allt einn 'misskilningur' samkvæmt því sem vitni sögðu í Héraðsdómi. 

Posted by Ritstjóri on Thursday, February 19, 2004 at 18:18 Comments (1745)

Yfirlýsing vegna brúðkaupsmynda

Vegna fyrirspurna frá fjölmiðlum og frétt í DV vil ég upplýsa að því miður hef ég ekki getað útvegar myndir af brúðkaupi mínu sem fram fór í Þingvallarkirkju 11 febrúar s.l., þar sem ljósmyndari sem fenginn var til að taka myndir við athöfnina seldi einkarétt á myndunum til Séð og Heyrt þvert á það samkomulag sem gert hafði verið við hann. 

 

Vegna forfalla komst æskufélagi minn Emil Þór Sigurðsson ljósmyndari ekki í athöfnina á Þingvöllum, og var þá útvegaður annar ljósmyndari sem ég þekki ekki til persónulega.  Ljósmyndarinn tók að sér að mynda athöfnina fyrir okkur hjónin og einnig að afgreiða myndir í samræmi við reglur Ljósmyndarfélags Íslands til fjölmiðla yrði þess óskað.

 

En svo brá við daginn eftir athöfnina, að hvorki við hjónin né aðrir gátu fengið eina einustu mynd frá brúðkaupinu, þar sem ljósmyndarinn hafði án samráðs við mig selt einhvern einkarétt á birtingu myndanna til tímaritsins Séð og Heyrt.  Við vonum að ljósmyndarinn og tímaritið Séð og Heyrt verði við þeirri beiðni að senda okkur hjónunum myndirnar og að ekki verði frekari hömlur settar á það að við fáum að njóta myndanna og senda þeim sem við óskum mynd úr brúðkaupi okkar.

 

Ástþór Magnússon

Posted by Ritstjóri on Tuesday, February 17, 2004 at 13:30

Page:  1 2  Next >>