| There are 22 News Items in 4 pages and your are on page number 1 |
| Oscar Arias - Friday, June 11, 2004 Forseti frá Costa Rica, friðarverðlaunahafi Nóbels lýsir yfir stuðningi við framboð og hugmyndafræði Ástþórs Magnússonar |
| Ritskoðun - Friday, June 11, 2004 Líkir ritskoðun RÚV við það sem gerðist í Júgóslavíu á tímum Slobodan Milosevic Fram er komið alvarlegt dæmi um ritskoðun RÚV og mismunum fjölmiðla í tengslum við forsetakosningar sem af erlendum fræðimönnum er líkt er við það sem gerðist í Júgóslavíu á tímum Slobodan Milosevic. Kastljós RÚV klippti í burtu meirihluta viðtals við Dr. Dietrich Fischer og allar tilvitnanir þessa merka fræðimanns um að Ástþór Magnússon gæti sem forseti Íslands valdið straumhvörfum í friðarmálum heims. Smelltu á linkinn Öll fréttin hér að neðan til að lesa hneykslunarbréf Dr. Fischer þar sem hann líkir meðhöndlun RÚV á viðtalinu sínu við það sem gerðist undir einræðisherranum Slobodan Milosevic. (full story) |
| Forsetar smáþjóða og friðarmál, opinn fyrirlestur - Tuesday, June 08, 2004 Fyrirlestur í Háskóla Íslands: DR. Johan Galtung, prófessor um friðarrannsóknir, segir að það fari vel á því að forseti smáríkis á borð við Ísland hafi það á sinni stefnuskrá að boða frið í heiminum. Galtung hélt erindi um hlutverk smáríkja í friðarumleitunum í Háskóla Íslands í vikunni og fjallaði um það í erindi sínu hvað forseti smáríkis eins og Íslands gæti gert til að stuðla að friði í heiminum. Sjá nánar linka til vinstri á www.forsetakosningar.is á stuðningsyfirlýsingar við framboð Ástþórs Magnússonar frá nokkrum af helstu frömuðum friðarmála í heiminum. (full story) |
| Könnun malefnin.com - Wednesday, May 26, 2004 Ástþór vinnur kosningarnar samkvæmt könnun á malefnin.com Samkvæmt skoðanakönnun á hinum vinsæla spjallvef www.malefnin.com mun Ástþór Magnússon bera sigur í komandi forsetakosningum. Hér er niðurstaðan:
|
|||||||||||||||||||||
| Hvað er verið að fela? - Saturday, May 22, 2004 Hvað er verið að fela? Dómsmálaráðuneytið hefur hafnað því að alþjóðlegir eftirlitsmenn Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu fái leyfi til að fylgjast með forsetakosningum á Íslandi. Hvað eru yfirvöld að fela? Höfnun ráðuneytisins á réttmætri kröfu frambjóðanda um heiðarlegar kosningar án mismununar skipar Íslandi í flokk þeirra ríkja sem gjarnan hafa verið kennd við bananalýðveldi og þeim ríkjum sem stjórnað er af illræmdum einræðisstjórnum. (full story) |
| Fyrstur að skila framboðsgögnum - Thursday, May 20, 2004 Ástþór fyrstur til að skila framboðsgögnum Í gær 19 maí var vottorðum yfirkjörstjórna skilað til dómsmálaráðuneytisins og þar með er búið að skila inn öllum gögnum fyrir löggilt forsetaframboð Ástþórs Magnússonar, en undirskriftum var skilað fyrir um þremur vikum. Eftirfarandi var bókað hjá dómsmálaráðuneytinu um leið og framboðinu var skilað: Krafa um eftirlitsmenn frá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (OSCE) Að gefnu tilefni krefst framboð Ástþórs Magnússonar þess að yfirvöld kalli til án tafar alþjóðlega eftirlitsmenn frá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (OSCE) til að fylgjast með aðdraganda, undirbúningi og framkvæmd kosninganna. Sérstaklega er kvartað yfir því að dómsmálaráðuneytið hefur haldið framboði Ástþórs Magnússonar í fjársvelti með því að neita afgreiðslu á tombóluhappdrættisleyfi sem sótt var um fyrir þremur mánuðum. Engin fordæmi eru fyrir slíkri synjun á fjáröflunarleyfi til stjórnmálasamtaka eða forsetaframboða. Þá eru fram komin ósvífin dæmi um misnotkun fjölmiðla í þágu eins frambjóðanda en samkvæmt upplýsingum okkar er umboðsmaður þess framboðs jafnframt lögmaður stærsta fjölmiðlafyrirtækis landsins og sú manneskja sem hafði umsjón með undirskriftarsöfnun meðmælenda fyrir frambjóðandann bæði við þessar kosningar og áður var amk þar til fyrir stuttu síðan starfsmaður sama fyrirtækis. Einnig komu fram árið 1996 dæmi um misnotkun fjölmiðla fyrirtækisins fyrir frambjóðandann. (full story) |
| Áhugaverður fundur - Tuesday, May 11, 2004 Segir forseta Íslands geta beitt sér fyrir að koma á friði í heiminum Friður kostar minna en stríð
Áhugaverður fundur Miðvikudaginn 12. maí efna Samtök herstöðvaandstæðinga til hádegisfundar í veitingasalnum Litlu Brekku í Bankastræti kl. 12:00. Þar mun Dr. Dietrich Fischer halda stutt erindi og svara spurningum um eitt og annað er viðkemur friðar- og afvopnunarmálum. |
|